Jülevenner Emmsjé Gauta - Fjölskyldusýning

Sérstök Julevenner fjölskyldusýning verður haldin 22. Desember klukkan 17:00. Fram koma  Aron Can, Birnir, Salka Sól, Páll Óskar, Sigga Beinteins, Bartónar og aðrir góðir gestir. Styttri sýning sem hæfir öllum aldurshópum.

Sýningar:
22.desember 17:00 fjölskyldusýning
22.desember kl.20:00

Langar þig á jólatónleika en nennir ekki að hlusta jólalög allt kvöldið?

Þá er komin lausn á því vandamáli!

Emmsjé Gauti hringir inn jólin ásamt fríðu föruneyti með skemmtilegri mixtúru af rapp og jólatónleikum. Rappsenan á Íslandi hefur aldrei verið stærri og er því kærkomið að rappunnendur fái sinn skerf af jólageðveikinni.

Ásamt Emmsjé Gauta koma fram Aron Can, Birnir, Salka Sól, Páll Óskar, Sigga Beinteins og Bartónar.

Undirleikur er í höndum mikilla meistara en það eru hljóðfæraleikarar á heimsmælikvarða sem sjá um að tónlistin njóti sín sem allra best. Hljómsveitina skipa Hrafnkell Guðjónsson, Vignir Rafn Hilmarsson, Björn Valur Pálsson, Steingrímur Teague og Rögnvaldur Borgþórsson.

Í fyrra seldist upp á 6 tónleika á stuttum tíma. Því er um að gera að tryggja sér miða sem allra fyrst.

Það vill enginn missa af innreið rappsins í jólatónleikasenuna.

Jólakveðja.

18 ára aldurstakmark er á kvöldtónleikana.

Dagsetning og tími

22. des kl. 17:00

Verð

3990 kr.