Halloween Horror Show

Halloween Horror Show sló rækilega í gegn í fyrra og seldist upp á mettíma. Hryllilegasta tónleikasýning sögunnar “gengur nú aftur” í Háskólabíói 26. og 27. október og skartar einhverju af fremsta tónlistarfólki Íslands. Fram koma Magni, Birgitta Haukdal, Stebbi Jak, Greta Salóme, Dagur Sigurðsson, Ólafur Egill, ásamt karlakór, hljómsveit, bakröddum, dönsurum og leikurum.

Á tónleikunum verða leikin lög eins og Highway to Hell, Zombie, Creep, Superstition og fleira í nýjum útsetningum.

Tónleikasýning þar sem öllu er tjaldað til og enginn fer óskelkaður út. Á undan sýningunni verður hálftíma fordrykkur í anddyri Háskólabíós með alls kyns uppákomum og gestir geta hitað upp fyrir tónleikana. Tónleikagestir eru hvattir til að mæta í búningum og vegleg verðlaun eru í boði fyrir besta búninginn.

Leikstjórn er í höndum Gretu Salóme og Ólafs Egils og um leikmynd og búninga sér Elma Bjarney Guðmundsdóttir.

Tónleikasýning sem á sér enga líka og enginn má missa af. Þorir þú?

Ath! Sérstök fjölskyldusýning er sunnudaginn 28.október kl 16 sem verður öllu minna hryllileg. Sérstök “grikk eða gott” stemning verður í anddyrinu frá 16-16:30 og um 40 mínútna sýning eftir það. Sýningin er sérstaklega ætluð börnum frá 6-12 ára.

Dagsetning og tími

28. okt kl. 16:00

Verð

3990 kr.